11.9.2019

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana 11. september 2019 – röð flokka og ræðumenn

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað miðvikudaginn 11. september 2019 kl. 19:30. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir, hver þingflokkur hefur 8 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri umferð og 4 mínútur í þriðju umferð en forsætisráðherra hefur 16 mínútur til framsögu.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

  • Vinstrihreyfingin – grænt framboð
  • Miðflokkurinn
  • Samfylkingin
  • Sjálfstæðisflokkur
  • Píratar
  • Framsóknarflokkur
  • Viðreisn
  • Flokkur fólksins

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í annarri umferð og Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn Miðflokksins verða í fyrstu umferð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þingmaður Norðausturkjördæmis, Ólafur Ísleifsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð og Birgir Þórarinsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. þingmaður Norðausturkjördæmis, í annarri umferð Helga Vala Helgadóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og Oddný G. Harðardóttir, 6. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokkinn verða Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri umferð og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra í þriðju umferð.

Fyrir Pírata tala Halldóra Mogensen, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Björn Leví Gunnarsson, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokkinn tala Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri umferð Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri Jón Steindór Valdimarsson, 13. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Þorsteinn Víglundsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Flokk fólksins talar Inga Sæland, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu og þriðju umferð en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð.

Stefnuraeda_rod_11092019