Þingskjölum útbýtt á vef Alþingis mánudaginn 7. október
Eftirfarandi þingskjölum var útbýtt á vef Alþingis mánudaginn 7. október:
- Niðurfelling ábyrgða á eldri námslánum – tillaga til þingsályktunar, Logi Einarsson, þingskjal 180.
- Starfshópur um útgáfu öruggra opinberra skilríkja – tillaga til þingsályktunar, Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingskjal 181.
- Akureyri sem miðstöð málefna norðurslóða á Íslandi – tillaga til þingsályktunar, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingskjal 183.
- Ráðherraábyrgð (upplýsingaskylda ráðherra) – frumvarp, Oddný G. Harðardóttir, þingskjal 186.
- Háskólar og opinberir háskólar (mat á reynslu og færni) – frumvarp, Bryndís Haraldsdóttir, þingskjal 187.
- Skráningarskylda félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri – stjórnarfrumvarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, þingskjal 194.
- Ávana- og fíkniefni – frumvarp, Halldóra Mogensen, þingskjal 23.