27.9.2021

Tölfræðilegar upplýsingar um 151. löggjafarþing

Þingfundum 151. löggjafarþings var frestað 6. júlí 2021. Þingið var að störfum frá 1. október til 18. desember 2020, frá 18. janúar til 13. júní 2021 og þann 6. júlí 2021.

Þingfundir voru samtals 120 og stóðu í rúmar 688 klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 44 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 16 klst. og 29 mín. Lengsta umræðan var um fjármálaáætlun 2022–2026 en hún stóð samtals í tæpar 26 klst. Þingfundadagar voru alls 100.

Af 304 frumvörpum varð alls 151 að lögum, 145 voru óútrædd, sex var vísað til ríkisstjórnarinnar og tvö ekki samþykkt. Af 173 þingsályktunartillögum voru 33 samþykktar, tvær sem voru lagðar fram í skýrslu nefndar voru einnig samþykktar, 135 tillögur voru óútræddar, ein ekki samþykkt og tveimur vísað til ríkisstjórnarinnar.

38 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. 24 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af 18 til ráðherra og 6 til ríkisendurskoðanda. Ráðherrar fluttu 15 munnlegar skýrslur.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 365. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 23 og var 18 svarað en þrjár kallaðar aftur. 342 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 320 þeirra svarað, tvær kallaðar aftur og 20 svör bárust ekki.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 898 og fjöldi prentaðra þingskjala var 1.928.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 291. Sérstakar umræður voru 24.

Samtals voru haldnir 600 fundir hjá fastanefndum.