Tilkynningar

Heiðurslaun listamanna

8.12.2022

Allsherjar- og menntamálanefnd hefur til umfjöllunar veitingu heiðurslauna listamanna á grundvelli laga, nr. 66/2012, um heiðurslaun listamanna.

Þeir einir geta notið heiðurslauna sem hafa varið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa eða skarað fram úr við listsköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavettvangi. Nefndin tekur tillit til skiptingar í hópi heiðurslaunamanna eftir listgreinum og kyni.

Unnt er að koma að tilnefningu til nefndarinnar á póstfangið heidurslaun@althingi.is fyrir kl. 12:00 á hádegi sunnudaginn 11. desember nk.