119. FUNDUR
föstudaginn 7. maí,
kl. 12 á hádegi.
Tilkynning um embættismann fastanefndar.
Forseti tilkynnti að Ólína Þorvarðardóttir hefði verið kjörin formaður umhverfisnefndar.
Tilkynning um mannabreytingar í nefndum.
Forseti kynnti eftirfarandi breytingar á nefndaskipan:
Utanríkismálanefnd: Ragnheiður E. Árnadóttir tekur sæti Þorgerðar K. Gunnarsdóttur og Einar K. Guðfinnsson verður varamaður í stað Ragnheiðar E. Árnadóttur.
Menntamálanefnd: Óli Björn Kárason, varamaður Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, tekur sæti Unnar Brár Konráðsdóttur.
Heilbrigðisnefnd: Óli Björn Kárason, varamaður Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, tekur sæti Ragnheiðar Ríkharðsdóttur.
Viðskiptanefnd: Sigurður Kári Kristjánsson, varamaður Illuga Gunnarssonar, tekur sæti Ragnheiðar E. Árnadóttur.
Tilkynning um dagskrá og tilhögun þingfundar.
Forseti tilkynnti að kl. hálftvö færi fram utandagskrárumræða að beiðni hv. 7. þm. Suðurk.
Störf þingsins.
Launakjör seðlabankastjóra -- mótmælendur í Alþingishúsinu -- atvinnumál o.fl.
Umræðu lokið.
Heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ, frh. 2. umr.
Stjfrv., 320. mál. --- Þskj. 393, nál. 1037 og 1048.
Frumvarpið gengur til 3. umræðu og iðnn.
Vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum, frh. 2. umr.
Stjfrv., 382. mál (heildarlög). --- Þskj. 686, nál. 1016.
Frumvarpið gengur til 3. umræðu
.
Brottfall laga nr. 16/1938, frh. 2. umr.
Stjfrv., 436. mál (afkynjanir). --- Þskj. 757, nál. 1036.
Frumvarpið gengur til 3. umræðu
.
Landflutningalög, frh. 3. umr.
Stjfrv., 58. mál (heildarlög). --- Þskj. 58, nál. 852, frhnál. 1039.
Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 1052).
Árlegur vestnorrænn dagur, síðari umr.
Þáltill. ÓÞ o.fl., 311. mál. --- Þskj. 363, nál. 1001.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.
Skýrsla sjávarútvegsráðherra Vestur-Norðurlanda um formlega samvinnu landanna á sviði sjávarútvegs, síðari umr.
Þáltill. ÓÞ o.fl., 313. mál. --- Þskj. 365, nál. 1002.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.
Vestnorrænt tilraunaverkefni á sviði fjarkennslu á háskólastigi, síðari umr.
Þáltill. ÓÞ o.fl., 315. mál. --- Þskj. 367, nál. 1003.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.
Samkomulag milli Íslands og Grænlands um skipti á útsendum sendifulltrúum, síðari umr.
Þáltill. ÓÞ o.fl., 316. mál. --- Þskj. 368, nál. 1004.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.
Málefni aldraðra á Vestur-Norðurlöndum, síðari umr.
Þáltill. ÓÞ o.fl., 317. mál. --- Þskj. 369, nál. 1005.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.
[Fundarhlé. --- 13:13]
Umræður utan dagskrár.
Forgangsmál ríkisstjórnarinnar í umhverfismálum.
Málshefjandi var Eygló Harðardóttir.
Þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, 1. umr.
Stjfrv., 532. mál (notkun þjóðfánans til markaðssetningar á íslenskri framleiðslu). --- Þskj. 921.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og allshn.
[14:34]
Dómstólar, 2. umr.
Stjfrv., 390. mál (reglur um skipun dómara). --- Þskj. 698, nál. 1045.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.
Bólusetning gegn HPV-smiti og leghálskrabbameini, fyrri umr.
Þáltill. SVÓ o.fl., 498. mál. --- Þskj. 875.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og heilbrn.
Efling græna hagkerfisins, fyrri umr.
Þáltill. SkH o.fl., 520. mál. --- Þskj. 909.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og iðnn.
Líkantilraunir vegna stórskipabryggju í Vestmannaeyjum, fyrri umr.
Þáltill. ÁJ o.fl., 535. mál. --- Þskj. 924.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og samgn.
Kennitöluflakk, 1. umr.
Frv. LMós o.fl., 497. mál (heimild til að synja félagi skráningar). --- Þskj. 872.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og viðskn.
Þingsköp Alþingis, 1. umr.
Frv. VBj o.fl., 539. mál (þingseta ráðherra). --- Þskj. 928.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og allshn.
Hvatningarverkefni til að efla innlenda framleiðslu, fyrri umr.
Þáltill. SIJ o.fl., 528. mál. --- Þskj. 917.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og allshn.
Út af dagskrá var tekið 17. mál.
Fundi slitið kl. 16:46.
---------------