Ferill 435. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
Þingskjal 1944 — 435. mál.
Þingsályktun
um samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034.
Alþingi ályktar, sbr. lög um samgönguáætlun, að fram til ársins 2034 skuli unnið að samgöngumálum í samræmi við áætlun þessa sem felur í sér:
a. stefnu í samgöngumálum og helstu markmið sem vinna skal að,
b. skilgreiningu á grunnneti samgöngukerfisins sem nær til alls landsins og er ætlað að tryggja landsmönnum greiðar samgöngur,
c. áætlun um fjáröflun til samgöngumála,
d. yfirlit um útgjöld til allra helstu þátta í rekstri samgöngustofnana, svo og viðhalds, öryggismála og nýframkvæmda á sviði flugmála, siglingamála og vegamála. Fjárhæðir eru á verðlagi fjárlaga fyrir árið 2020 og eru í milljónum króna.
Áætlun þessi taki mið af og verði hluti af heildstæðri samþættri stefnu í samgöngumálum, fjarskiptamálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og gerð í samræmi við samþykktar áætlanir á vegum Alþingis og ríkisstjórnar.
1. FRAMTÍÐARSÝN OG MEGINMARKMIÐ
Ísland verði í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög, verðmætasköpun og framsækna þjónustu. Tækni tengi byggðir landsins og Ísland við umheiminn í jafnvægi við umhverfið.
Meginmarkmið áætlana í samgöngu- og sveitarstjórnarmálum:
– Þjónusta samgöngu- og fjarskiptakerfa mæti þörfum samfélagsins.
– Sjálfbærar byggðir og sveitarfélög verði um land allt.
Fjárveitingar til einstakra málaflokka og tímasetning, svo og til einstakra verkefna sem áhersla er lögð á að komist til framkvæmda á áætlunartímabilinu 2020–2034, byggist á framangreindum meginmarkmiðum ásamt áherslum ráðherra og ríkisstjórnar.
2. MARKMIÐ OG ÁHERSLUR
2.1. Markmið um greiðar samgöngur.
Stefnt verði að því að samgöngukerfi landsins myndi eina samþætta heild sem þjóni íbúum og atvinnulífi sem best. Aðgengi fólks að þjónustu og vörum verði tryggt og hreyfanleiki bættur.
Búsetugæði verði aukin með því að bæta samgöngur innan og milli skilgreindra vinnusóknarsvæða og stækka þau þar sem hægt er.
Uppbygging og rekstur samgangna stuðli að eflingu atvinnulífs innan og milli landshluta.
Áherslur til að ná þessum markmiðum:
Almennar áherslur:
2.1.1 Þjónusta í grunnnetinu verði bætt, m.a. með því að nýta tæknilausnir, þ.m.t. á sviði upplýsingatækni.
2.1.2 Gáttir landsins verði vel skilgreindar og styrktar.
2.1.3 Aðgengi fólks með fötlun að mannvirkjum og þjónustu samgöngukerfisins verði eins og best verður á kosið.
2.1.4 Samgöngukerfið taki tillit til þarfa ferðaþjónustunnar, m.a. vegna markmiða um dreifingu ferðamanna um landið. Sérstaklega skuli hugað að vetrarþjónustu á vegakerfinu.
Uppbygging og rekstur samgöngukerfisins:
2.1.5 Allar helstu stofnleiðir og tenging þeirra við þéttbýli með fleiri en 100 íbúa verði með bundnu slitlagi og viðunandi burðarþoli.
2.1.6 Áfram verði unnið að lagningu á bundnu slitlagi á umferðarlitla vegi sem hafa viðunandi burðarþol þrátt fyrir að veghönnun sé að einhverju leyti ábótavant.
2.1.7 Unnið verði að þróun stofnvegakerfis höfuðborgarsvæðisins í samvinnu við sveitarfélögin til að auka öryggi og bæta umferðarflæði.
2.1.8 Viðhald stofnvega á hálendi og endurbætur á þeim beinist að því að auka öryggi og koma í veg fyrir akstur utan vega.
2.1.9 Einbreiðum brúm á umferðarmestu vegum landsins verði fækkað.
2.1.10 Þjónustu á vegum verði forgangsraðað með hliðsjón af umferð.
2.1.11 Miða skuli við að Reykjavíkurflugvöllur geti áfram þjónað innanlandsflugi á fullnægjandi hátt á meðan annar jafn góður eða betri kostur er ekki fyrir hendi.
2.1.12 Greiðsluþátttöku ríkisins í hafnarframkvæmdum verði forgangsraðað annars vegar í þágu öryggis og hins vegar í þágu atvinnusköpunar.
Flutningar og tenging við gáttir:
2.1.13 Flutningaleiðir á landi og sjó verði skilgreindar. Vegir skilgreindir með áherslu á nægjanlegt burðarþol, næga breidd og bundið slitlag.
2.1.14 Rannsóknir sem varða hafnir og siglingaleiðir verði efldar.
2.1.15 Í samgönguáætlun verði gerð grein fyrir stefnu í siglinga- og hafnamálum sérstaklega.
2.1.16 Til sé öflugt kerfi flugvalla sem svari þörfum þjóðarinnar.
2.1.17 Keflavíkurflugvöllur verði áfram öflugur alþjóða- og tengiflugvöllur sem standist samanburð við bestu flugvelli erlendis og mæti þróun millilanda- og tengiflugs.
2.1.18 Stuðlað verði að reglubundnu millilandaflugi um fleiri alþjóðaflugvelli en Keflavíkurflugvöll með hvatakerfi og öðrum aðgerðum sem til þess henta.
Almenningssamgöngur milli byggða:
2.1.19 Leitast verði við að jafna vægi ferðamáta í þéttbýli með það að markmiði að stuðla að breyttum ferðavenjum.
2.1.20 Áfram verði unnið að auknum forgangi almenningssamgangna í umferðinni með gerð sérreina, forgangi á umferðarljósum og öðrum aðgerðum.
2.1.21 Íbúar landsbyggðarinnar eigi kost á að komast til höfuðborgarsvæðisins á um 3,5 klst. samþættum ferðatíma, akandi, með almenningsvagni, ferju og/eða í flugi.
2.1.22 Unnið verði að því að efla almenningssamgöngur milli byggða með því að gera þjónustuna aðgengilegri og meira aðlaðandi fyrir notendur.
Gangandi og hjólandi:
2.1.23 Áfram verði stutt við gerð stofnstíga gangandi og hjólandi í þéttbýli og milli þéttbýlisstaða.
2.1.24 Leitast verði við að gera hjólreiðar og göngu að greiðum og öruggum ferðamáta.
Tækniþróun:
2.1.25 Samgönguyfirvöld fylgist með tækniþróun og innleiðingu tæknilausna í samanburðarlöndum, taki þátt í mótun þeirra og stuðli að innleiðingu þegar þær verða hagkvæmar.
2.1.26 Farnetssamband verði tryggt á þjóðvegum, fjölsóttum ferðamannastöðum og við strendur landsins.
2.1.27 Innviðir, þ.m.t. fjarskiptanet, styðji nýtingu upplýsingatækni, m.a. við umferðarstjórnun, miðlun upplýsinga um aðstæður, innheimtu notenda- og veggjalda, samskipti milli ökutækja og við innviði.
2.1.28 Lagaumhverfi og innviðir taki tillit til aukinnar sjálfvirkni farartækja.
2.1.29 Fjarskiptatækni verði nýtt í auknum mæli til að miðla upplýsingum til notenda um leiðir og aðstæður í lofti, á láði og legi.
Samgöngusáttmáli:
2.1.30 Stuðlað verði að greiðum, skilvirkum, hagkvæmum og öruggum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta. Leitað verði leiða til að dreifa umferðarálagi með markvissum hætti og bæta þannig nýtingu allra innviða.
2.1.31 Unnið verði að því að tryggja skilvirka framkvæmd Samgöngusáttmála og trausta umgjörð verkefnisins, m.a. með því að skilgreina samstarfsform, kostnaðarskiptingu og ábyrgð á tilteknum aðgerðum og fjármögnunarleiðum.
2.2. Markmið um öruggar samgöngur.
Öryggi verði haft til hliðsjónar við allar ákvarðanir, áherslur og aðgerðir í samgöngumálum óháð ferðamáta. Markmið allra öryggisaðgerða snúist um að vernda mannslíf og að Ísland standi jafnfætis þeim ríkjum er fremst standa í öryggismálum.
Áherslur til að ná þessum markmiðum:
Almennar áherslur:
2.2.1 Unnið verði eftir samræmdum öryggisáætlunum allra samgöngugreina og gerðar aðgerðaáætlanir til fimm ára fyrir hverja samgöngugrein með mælanlegum markmiðum og árangursmælikvörðum.
2.2.2 Fyrir liggi mat á öryggishlutverki flugvalla, hafna og vega, m.a. með tilliti til ófyrirséðra atburða, svo sem náttúruhamfara.
2.2.3 Hvatt verði til þess að fyrirtæki og stofnanir komi sér upp virkum öryggisstjórnunarkerfum á öllum sviðum samgangna.
2.2.4 Slys, óhöpp og öryggisatvik í flugi, siglingum og umferð verði skráð og greind og upplýsingarnar nýttar til ráðstafana sem auka öryggi.
2.2.5 Skráning samgönguslysa og annarra atvika verði bætt og samræmd.
2.2.6 Trúverðugleiki Íslands verði tryggður með því að landið standist allar úttektir alþjóðlegra stofnana á öryggi í samgöngum.
2.2.7 Eftirlit og tíðni eftirlits með leyfishöfum taki mið af áhættu og frammistöðu þeirra í öryggismálum.
Markmið flugöryggisáætlunar:
a. Ísland verði í hópi þeirra fimm fremstu Evrópuþjóða þar sem fæst flugslys verða miðað við flugtíma og fjölda hreyfinga.
b. Flugslysum og alvarlegum flugatvikum í áætlunar- og leiguflugi fækki um 3% til ársins 2024.
Markmið siglingaöryggisáætlunar:
a. Öryggi íslenskra skipa, áhafna og farþega verði treyst og aukið þannig að enginn látist í sjóslysum eða hið minnsta að ekki látist fleiri en einn á ári í sjóslysum að jafnaði á tímabilinu.
b. Slysum á sjómönnum fækki um 5% á ári.
Markmið umferðaröryggisáætlunar:
a. Ísland verði meðal fimm fremstu Evrópuríkja hvað varðar færri dauðsföll og alvarlega slasaða í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa.
b. Dauðsföllum af slysförum í umferðinni og alvarlega slösuðum fækki að jafnaði um 5% á ári.
Börn og samgöngur:
2.2.8 Hafin verði vinna við að greina stöðu barna og ungmenna í samgöngum með það að markmiði að stefnumótun í samgöngumálum taki mið af þörfum þeirra.
Almenningssamgöngur milli byggða:
2.2.9 Miða skuli við að þeir innviðir sem leiðakerfi almenningssamgangna liggur um séu í forgangi þegar kemur að vetrarþjónustu. Við allar framkvæmdir og viðhaldsvinnu sé tekið sérstakt tillit til almenningssamgangna og leitað leiða til þess að truflun á þjónustunni verði sem minnst.
2.2.10 Tryggja skuli að farartæki í heildstæðu almenningssamgöngukerfi séu eins örugg og unnt er. Öryggisútbúnaður farartækja fylgi tækniþróun og sé ávallt í fremstu röð.
Flug:
2.2.11 Flugöryggi á Íslandi verði áfram tryggt.
2.2.12 Aukin notkun ómannaðra loftfara veiki ekki flugöryggi hér á landi.
2.2.13 Flugvernd á Íslandi verði áfram tryggð.
2.2.14 Unnið verði að því að tryggja aðgengi samgangna að öruggri og skilvirkri gervihnattaleiðsögu, þar á meðal á flugvöllum.
Samgöngusáttmáli:
2.2.15 Uppbygging samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt Samgöngusáttmála verði til þess að stuðla að auknu umferðaröryggi og mikilli fækkun slysa.
2.3. Markmið um hagkvæmar samgöngur.
Stefnt verði að því að auka hagkvæmni í samgöngum fyrir notendur og samfélagið. Staðið verði að framkvæmdum, viðhaldi og þjónustu með skilvirkum hætti og fjármunir nýttir á eins hagkvæman hátt og unnt er.
Áherslur til að ná þessum markmiðum:
Almennar áherslur:
2.3.1 Leitað verði hagkvæmustu lausna í uppbyggingu og rekstri samgöngukerfisins.
2.3.2 Verðlagning á samgöngum verði gagnsæ og endurspegli kostnaðinn sem þeim fylgir.
2.3.3 Litið verði á samgöngukerfið sem eina heild. Nýir innviðir verði skipulagðir og þeim forgangsraðað með hliðsjón af niðurstöðum faglegra greininga.
2.3.4 Áfram verði unnið að greiningu og rannsóknum með það að markmiði að aðkoma ríkisins í útgjöldum og skattlagningu stuðli að auknu jafnræði milli flutningsmáta.
Upplýsingatækni og rafræn stjórnsýsla:
2.3.5 Rafræn þjónusta verði efld í stjórnsýslu samgöngustofnana.
2.3.6 Fjarskiptaaðstaða í eigu og rekstri opinberra aðila verði kortlögð með hagkvæmni í rekstri og þjónustu að leiðarljósi.
2.3.7 Aðgengi verði aukið að gögnum í eigu opinberra aðila og einkaaðila sem stuðlað geta að bættum samgöngum.
Hagkvæmir ferðamátar og álagsdreifing:
2.3.8 Unnið verði að greiningu og rannsóknum á hagkvæmni og afkastagetu samgönguinnviða.
2.3.9 Ferðavenjukönnun fyrir landið allt verði unnin á minnst þriggja ára fresti.
Fjármögnun framkvæmda:
2.3.10 Áfram verði skoðaðar fjölbreyttar leiðir til fjármögnunar stórra framkvæmda, m.a. í samstarfi við einkaaðila og með innheimtu veggjalda.
Almenningssamgöngur milli byggða:
2.3.11 Leita skuli leiða til þess að tryggja samkeppnishæfni almenningssamgangna.
2.3.12 Tryggja skuli samþættingu leiðakerfa og þjónustu almenningssamgangna í flugi, á sjó og landi. Fjárhagsleg ábyrgð og ábyrgð á skipulagi þjónustunnar fari saman.
Flug:
2.3.13 Menntun og rannsóknir í fluggreinum verði efldar.
2.3.14 Stefnt verði að því að Ísland sinni áfram þeirri loftrýmisþjónustu sem veitt er á Norður-Atlantshafssvæðinu.
2.3.15 Samkeppnishæft rekstrarumhverfi verði í flugi þar sem gjaldtaka sé sambærileg við það sem gerist erlendis.
2.3.16 Áfram verði unnið að fjölgun loftferðasamninga í samráði við flugrekendur.
2.4. Markmið um umhverfislega sjálfbærar samgöngur.
Stefnt skuli að því að samgöngur verði umhverfislega sjálfbærar og dregið verði úr hnattrænum, svæðisbundnum og staðbundnum umhverfisáhrifum samgangna.
Áherslur til að ná þessum markmiðum:
Almennar áherslur:
2.4.1 Við hönnun, framkvæmd, rekstur og viðhald mannvirkja verði tekið tillit til umhverfissjónarmiða.
2.4.2 Stuðlað verði að því að skip verði tengd rafmagni í höfnum.
2.4.3 Mótuð verði stefna um hönnun vega á hálendi Íslands í samræmi við áherslur landsskipulagsstefnu.
Hnattræn umhverfisáhrif og loftslagsmál:
2.4.4 Unnið verði samkvæmt markmiðum aðgerðaáætlunar íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum um samgöngur.
Staðbundin og svæðisbundin umhverfisáhrif:
2.4.5 Áfram verði leitað leiða til að bæta staðbundin loftgæði og hljóðvist við þjóðvegi í þéttbýli í samstarfi við sveitarfélög.
Orkunýting og mengun:
2.4.6 Rannsóknir verði auknar á umhverfisvænum orkugjöfum, orkusparnaði og aðgerðum til að draga úr mengun.
2.4.7 Hugað verði að því hvernig megi lágmarka afleiðingar mengunarslysa frá samgöngum.
Aðlögun innviða að loftslagsbreytingum:
2.4.8 Horft verði til afleiðinga loftslagsbreytinga og leitað hagkvæmra leiða til að laga núverandi mannvirki að þessum breytingum með öryggi og notagildi í huga.
Almenningssamgöngur milli byggða:
2.4.9 Stuðlað verði að því að lágmarka umhverfisáhrif af rekstri almenningssamgangna.
Flug:
2.4.10 Ísland verði í fremsta flokki í umhverfismálum tengdum flugi og flugrekstri.
2.4.11 Stefnt verði að hvötum til orkuskipta í flugi þegar fullnægjandi tækni hefur verið þróuð.
Samgöngusáttmáli:
2.4.12 Stuðlað verði að því að ná loftslagsmarkmiði stjórnvalda um sjálfbært, kolefnishlutlaust borgarsamfélag með eflingu almenningssamgangna, deilihagkerfis í samgöngum og bættum innviðum fyrir aðra vistvæna samgöngumáta auk þess að hvetja til breyttra ferðavenja.
2.5. Markmið um jákvæða byggðaþróun.
Stefnt verði að því að auka lífsgæði um land allt með bættum samgöngum og styrkja þann grunn sem nauðsynlegur er til að efla fjölbreytta atvinnu og bæta samkeppnishæfni, svo sem með betri aðgangi að þjónustu.
Áherslur til að ná þessum markmiðum:
Almennar áherslur:
2.5.1 Leitast verði við að styrkja samgöngur þannig að sem flestum landsmönnum sé kleift að nálgast nauðsynlega opinbera þjónustu á sem stystum tíma.
2.5.2 Unnið verði að styttingu ferðatíma innan vinnu- og skólasóknarsvæða.
2.5.3 Framkvæmdir og þjónusta samgöngukerfisins miði að því að auka öryggi og styrkja vinnu- og skólasóknarsvæði.
2.5.4 Mótuð verði stefna um vegi sem þjóna aðallega ferðamönnum.
Forgangsröðun í samgöngum með hliðsjón af kynbundnum áherslum:
2.5.5 Við forgangsröðun samgönguverkefna verði jafnréttissjónarmið höfð til hliðsjónar.
2.5.6 Leitað verði leiða til þess að efla hlut kvenna í samgöngum.
Almenningssamgöngur:
2.5.7 Samþætt almenningssamgöngukerfi á landi, í lofti og á sjó stuðli að jákvæðri byggðaþróun og styrki vinnu- og skólasóknarsvæði.
3. GRUNNNET SAMGANGNA
Flugvellir:
Flugvellir í grunnneti:
Keflavík
Reykjavík
Bíldudalur
Ísafjörður
Gjögur
Akureyri
Grímsey
Húsavík
Vopnafjörður
Egilsstaðir
Höfn í Hornafirði
Vestmannaeyjar
Þórshöfn
Hafnir:
Hafnir í grunnneti:
Faxaflóahafnir
Reykjavíkurhöfn
Grundartangahöfn
Akraneshöfn
Snæfellsbæjarhafnir
Rifshöfn
Ólafsvíkurhöfn
Grundarfjarðarhöfn
Stykkishólmshöfn (ferjuleið)
Vesturbyggðarhafnir
Brjánslækjarhöfn (ferjuleið)
Bíldudalshöfn
Bolungarvíkurhöfn
Ísafjarðarhöfn
Skagastrandarhöfn
Sauðárkrókshöfn
Hafnir Fjallabyggðar
Siglufjarðarhöfn
Hafnir Dalvíkurbyggðar
Dalvíkurhöfn (ferjuleið)
Árskógssandshöfn (ferjuleið)
Hafnasamlag Norðurlands
Hríseyjarhöfn (ferjuleið)
Akureyrarhöfn
Grímseyjarhöfn (ferjuleið)
Húsavíkurhöfn
Hafnir Langanesbyggðar
Þórshafnarhöfn
Vopnafjarðarhöfn
Seyðisfjarðarhöfn (ferjuleið til Evrópu)
Hafnir Fjarðabyggðar
Norðfjarðarhöfn
Eskifjarðarhöfn
Reyðarfjarðar- /Mjóeyrarhöfn
Fáskrúðsfjarðarhöfn
Djúpavogshöfn
Hornafjarðarhöfn
Vestmannaeyjahöfn (ferjuleið)
Landeyjahöfn (ferjuleið)
Þorlákshöfn (ferjuleið, m.a. til Evrópu)
Grindavíkurhöfn
Sandgerðishöfn
Reykjaneshöfn
Hafnarfjarðarhöfn
Vegir:
Vegir í grunnneti:
Stofnvegir:
1 Hringvegur
22 Dalavegur
26 Sprengisandsleið
Þjórsárdalsvegur – Fjallabaksleið nyrðri
30 Skeiða- og Hrunamannavegur
31 Skálholtsvegur
32 Þjórsárdalsvegur
33 Gaulverjabæjarvegur
34 Eyrarbakkavegur
35 Biskupstungnabraut
36 Þingvallavegur
37 Laugarvatnsvegur
38 Þorlákshafnarvegur
39 Þrengslavegur
40 Hafnarfjarðarvegur
41 Reykjanesbraut
43 Grindavíkurvegur
44 Hafnavegur
45 Garðskagavegur
Reykjanesbraut – Sandgerðisvegur
47 Hvalfjarðarvegur
49 Nesbraut
50 Borgarfjarðarbraut
51 Akrafjallsvegur
52 Uxahryggjavegur
Kaldadalsvegur – Þingvallavegur
54 Snæfellsnesvegur
56 Vatnaleið
58 Stykkishólmsvegur
60 Vestfjarðavegur
61 Djúpvegur
62 Barðastrandarvegur
63 Bíldudalsvegur
64 Flateyrarvegur
65 Súgandafjarðarvegur
Vestfjarðavegur – Sætún
67 Hólmavíkurvegur
68 Innstrandavegur
72 Hvammstangavegur
74 Skagastrandarvegur
75 Sauðárkróksbraut
76 Siglufjarðarvegur
77 Hofsósbraut
Siglufjarðarvegur – Lindargata
82 Ólafsfjarðarvegur
Hringvegur – Hornbrekka
83 Grenivíkurvegur
85 Norðausturvegur
87 Kísilvegur
92 Norðfjarðarvegur
93 Seyðisfjarðarvegur
94 Borgarfjarðarvegur
95 Skriðdals- og Breiðdalsvegur
97 Breiðdalsvíkurvegur
Hringvegur – Sæberg
98 Djúpavogsvegur
99 Hafnarvegur
205 Klausturvegur
Hringvegur – Skaftárvellir
208 Skaftártunguvegur
Hringvegur – Búlandsvegur
254 Landeyjahafnarvegur
261 Fljótshlíðarvegur
Hringvegur – Öldubakki
343 Álfsstétt
Eyrarbakkavegur – Túngata (eystri endi)
355 Reykjavegur
359 Bræðratunguvegur
365 Lyngdalsheiðarvegur
376 Breiðamörk
Hringvegur – Sunnumörk
379 Hafnarvegur Þorlákshöfn
409 Fossvogsbraut
411 Arnarnesvegur
413 Breiðholtsbraut
414 Flugvallarvegur Reykjavík
418 Bústaðavegur
421 Vogavegur
423 Miðnesheiðarvegur
424 Keflavíkurvegur
427 Suðurstrandarvegur
429 Sandgerðisvegur
450 Sundabraut
453 Sundagarðar
454 Holtavegur
458 Brautarholtsvegur
Hringvegur – Hofsgrund
470 Fjarðarbraut
506 Grundartangavegur
509 Akranesvegur
511 Hvanneyrarvegur
518 Hálsasveitarvegur
573 Rifshafnarvegur
574 Útnesvegur
Hellissandur – Snæfellsnesvegur
606 Karlseyjarvegur
Reykhólasveitarvegur – Hellisbraut
607 Reykhólasveitarvegur
Vestfjarðavegur – Karlseyjarvegur
617 Tálknafjarðarvegur
Bíldudalsvegur – Strandgata 2
619 Ketildalavegur
Bíldudalsvegur – Langahlíð
622 Svalvogavegur
Vestfjarðavegur – Flugvallarvegur
623 Flugvallarvegur Þingeyri
631 Flugvallarvegur Ísafirði
636 Hafnarvegur Ísafirði
731 Svínvetningabraut
Kjalvegur – Hringvegur
744 Þverárfjallsvegur
749 Flugvallarvegur Sauðárkróki
767 Hólavegur
Siglufjarðarvegur – Hólar
792 Hafnarvegur Siglufirði
801 Hafnarvegur Hrísey
808 Árskógssandsvegur
809 Hauganesvegur
Ólafsfjarðarvegur – Lyngholt
810 Hafnarvegur Dalvík
819 Hafnarvegur Akureyri
820 Flugvallarvegur Akureyri
821 Eyjafjarðarbraut vestri
Hringvegur – Miðbraut
823 Miðbraut
829 Eyjafjarðarbraut eystri
Hringvegur – Miðbraut
830 Svalbarðseyrarvegur
Hringvegur – Laugartún
842 Bárðardalsvegur vestri
845 Aðaldalsvegur
859 Hafnarvegur Húsavík
869 Langanesvegur
Norðausturvegur – Flugvallarvegur
870 Sléttuvegur
Norðausturvegur – Kópaskersvegur
870 Kópaskersvegur
871 Flugvallarvegur Þórshöfn
874 Raufarhafnarvegur
Norðausturvegur – Höfðabraut
917 Hlíðarvegur
918 Hafnarvegur Vopnafirði
941 Flugvallarvegur Egilsstöðum
952 Hánefsstaðavegur
Seyðisfjarðarvegur á Fjarðaröldu – Seyðisfjarðarvegur við Ferjubryggju
955 Vattarnesvegur
Ytri vegamót Skólavegar – Suðurfjarðarvegur Fáskrúðsfirði
982 Flugvallarvegur Hornafirði
5033 Hagamelsvegur
Hringvegur – Lækjarmelur
5240 Bifrastarvegur
9572 Mjóeyrarvegur
Stofnvegir um hálendi:
F26 Sprengisandsleið
35 Kjalvegur
F208 Fjallabaksleið nyrðri (hluti nr. 208)
550 Kaldadalsvegur
Ferjuleiðir og eftirtaldar hafnir eru hluti af grunnnetinu:
Vestmannaeyjar – Landeyjahöfn/Þorlákshöfn,
Hrísey – Árskógsströnd,
Grímsey – Dalvík,
Stykkishólmur – Brjánslækur.
4. FJÁRMÁL SAMGÖNGUÁÆTLUNAR – SUNDURLIÐUN ÚTGJALDA
4.1. Samgöngustofa.
Tafla 1 – Fjármál Samgöngustofu.
1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | Samtals | |
Verðlag fjárlaga fyrir árið 2020 (millj. kr.). | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |
Tekjur | ||||
Ríkisframlag | 6.475 | 6.479 | 6.479 | 19.433 |
Rekstrartekjur | 6.726 | 6.726 | 6.726 | 20.178 |
Tekjur samtals | 13.201 | 13.205 | 13.205 | 39.611 |
Gjöld | ||||
Rekstur, stjórnsýsla og þjónusta | 3.385 | 3.389 | 3.389 | 10.163 |
Forvarnir og öryggisáætlanir Íslands | 1.132 | 1.132 | 1.132 | 3.396 |
Eftirlit með innlendum aðilum | 4.010 | 4.010 | 4.010 | 12.030 |
Eftirlit með erlendum aðilum | 343 | 343 | 343 | 1.029 |
Þjónusta og skrár í umsjón Samgöngustofu | 4.160 | 4.160 | 4.160 | 12.480 |
Rannsóknir og þróun. Umhverfismál | 171 | 171 | 171 | 513 |
Rekstur samtals | 13.201 | 13.205 | 13.205 | 39.611 |
4.2. Flugvellir og flugleiðsöguþjónusta.
Tafla 2 – Tekjur og gjöld flugmála.
1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | Samtals | |
Verðlag fjárlaga fyrir árið 2020 (millj. kr.). | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |
Tekjur | ||||
Ríkisframlag | 12.305 | 12.318 | 12.318 | 36.941 |
Framlag úr Almenna varasjóðnum | 846 | 0 | 0 | 846 |
Notendagjöld | 3.013 | 3.000 | 3.000 | 9.013 |
Tekjur samtals | 16.164 | 15.318 | 15.318 | 46.800 |
Gjöld | ||||
Rekstur alls | 12.920 | 12.920 | 12.920 | 38.760 |
Viðhald og stofnkostnaður | 3.244 | 2.398 | 2.398 | 8.040 |
Gjöld alls | 16.164 | 15.318 | 15.318 | 46.800 |
4.3. Vegagerðin.
Tafla 3 – Fjármál Vegagerðarinnar.
Tekjur og framlög. | 1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | Samtals |
Verðlag fjárlaga fyrir árið 2020 (millj. kr.). | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | 2020–2034 |
10-211 Vegagerðin | ||||
Rekstrarframlög | 51.092 | 53.793 | 58.903 | 163.788 |
Fjárfestingarframlög | 119.793 | 135.361 | 140.477 | 395.631 |
Framlag úr Almenna varasjóðnum | 5.257 | 0 | 0 | 5.257 |
Framlög úr ríkissjóði samtals: | 176.142 | 189.154 | 199.380 | 564.676 |
Almennar sértekjur | 2.114 | 2.114 | 2.114 | 6.342 |
Tekjur af Landeyjahöfn | 50 | 50 | 50 | 150 |
Sértekjur samtals: | 2.164 | 2.164 | 2.164 | 6.492 |
Til ráðstöfunar samtals: | 178.306 | 191.318 | 201.544 | 571.168 |
10-241 Hafnarframkvæmdir | ||||
Rekstrarframlög | 5.105 | 4.558 | 4.558 | 14.220 |
Framlag úr Almenna varasjóðnum | 404 | 0 | 0 | 404 |
Framlög úr ríkissjóði samtals: | 5.508 | 4.558 | 4.558 | 14.624 |
Til ráðstöfunar samtals: | 5.508 | 4.558 | 4.558 | 14.624 |
Tafla 4 – Skipting útgjalda Vegagerðarinnar.
1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | Samtals | |
Verðlag fjárlaga fyrir árið 2020 (millj. kr.). | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | 2020–2034 |
10-211 Vegagerðin | ||||
Rekstur: | ||||
Almennur rekstur | 4.333 | 4.690 | 4.690 | 13.713 |
Stjórn og undirbúningur | ||||
Sértekjur | ||||
Vaktstöð siglinga | ||||
Viðhald vita og leiðsögukerfa | ||||
Rekstur Landeyjahafnar | ||||
Rannsóknir | ||||
Þjónusta | 30.007 | 31.814 | 35.125 | 96.946 |
Svæði og rekstrardeild | ||||
Sértekjur | ||||
Almenn þjónusta | ||||
Vetrarþjónusta | ||||
Styrkir til almenningssamgangna | 16.801 | 17.289 | 19.088 | 53.178 |
Ferjur | ||||
Sérleyfi á landi | ||||
Innanlandsflug | ||||
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu | ||||
Fjárfestingar: | ||||
Framkvæmdir á vegakerfinu | ||||
Viðhald | 53.710 | 55.735 | 61.536 | 170.981 |
Nýframkvæmdir | 67.205 | 76.552 | 75.548 | 219.305 |
Framkvæmdir við vita og hafnir | 3.601 | 2.803 | 3.094 | 9.498 |
Vitabyggingar | ||||
Sjóvarnargarðar | ||||
Landeyjahöfn | ||||
Ferjubryggjur | ||||
Hafna- og strandrannsóknir | ||||
Botndælubúnaður við Landeyjahöfn | 355 | 271 | 299 | 925 |
Bíldudalur – Landfylling austan hafnar | 129 | 129 | ||
Samtals Vegagerðin 10-211: | 176.145 | 189.154 | 199.380 | 564.679 |
10-241 Hafnarframkvæmdir | ||||
Rekstur | ||||
Hafnabótasjóður | 5.508 | 4.558 | 4.558 | 14.624 |
Samtals hafnarframkvæmdir 10-241: | 5.508 | 4.558 | 4.558 | 14.624 |
Útgjöld vegna framkvæmda.
Tafla 5 – Sundurliðun verkefna.
Suðursvæði I. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
|||||||||
Eftirstöðvar | Hönnunarstig | ||||||||||||
Vegnr. | Vegheiti | Lengd | kostnaðar 1.1.2020 | 1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | lokið | ||||||
Kaflanr. | Kaflaheiti | kafla [km] | [m.kr.] | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |||||||
Undirbúningur verka utan áætlunar | 860 | 260 | 300 | 300 | |||||||||
1 | Hringvegur | ||||||||||||
a1 | Um Núpsvötn | 0,5 | 750 | 20 | 730 | Skilgreining | X | X | |||||
a3–a4 | Fossálar – Hörgsá | 8 | 850 | 850 | Frumdrög | X | X | ||||||
a4 | Um Breiðbalakvísl | 0,5 | 600 | 600 | Frumdrög | X | X | X | |||||
b2–b4 | Um Mýrdal* | 13,3 | (6.500–8.000) | 100 | Frumdrög | X | X | ||||||
b4 | Um Gatnabrún og öryggisaðgerðir Vík | 2,5 | 500 | 500 | Frumdrög | X | X | ||||||
b5 | Jökulsá á Sólheimasandi | 0,5 | 550 | 550 | Frumdrög | X | X | ||||||
b7 | Hringtorg við Landvegamót | 200 | 180 | ||||||||||
c3 | Um Hellu, hringtorg | 0,7 | 270 | 250 | Skilgreining | X | X | ||||||
c4–d1 | Hella – Skeiðavegamót | 20 | 8.000 | 8.000 | Skilgr./Frumdr. | X | X | ||||||
d2 | Skeiðavegamót – Selfoss | 13 | 5.200 | 5.200 | Skilgr./Frumdr. | X | X | ||||||
d2–d5 | Norðaustan Selfoss, brú yfir Ölfusá** | 5 | 6.000 | 20 | Forhönnun | X | X | X | |||||
d6 | Biskupstungnabraut – Varmá | 8,9 | 5.450 | 5.450 | Verkhönnun | X | X | ||||||
d6–d8 | Varmá – Kambar | 3,0 | 2.700 | 2.400 | 300 | Forhönnun | X | X | |||||
30 | Skeiða- og Hrunamannavegur | ||||||||||||
04 | Um Stóru-Laxá | 0,6 | 540 | 30 | 510 | Frumdrög | X | X | |||||
05 | Hringtorg Flúðum | 0,2 | 200 | 10 | 150 | Skilgreining | X | X | |||||
08 | Einholtsvegur – Biskupstungnabraut | 4,4 | 350 | 250 | Verkhönnun | X | X | ||||||
34 | Eyrarbakkavegur | ||||||||||||
01–02 | Hringtorg og undirgöng við Suðurhóla | 1 | 220 | 220 | Frumdrög | X | X | ||||||
02 | Hringtorg við Bjarkarland og Víkurheiði | 100 | 10 | ||||||||||
35 | Biskupstungnabraut | ||||||||||||
08 | Um Geysissvæðið og Tungufljót | 5 | (1.100) | 1.100 | Skilgr./Frumdr. | X | X | ||||||
355 | Reykjavegur | ||||||||||||
01 | Biskupstungnabraut – Laugarvatnsvegur | 8 | 200 | 200 | Verkhönnun | X | X | X | |||||
Samtals Suðursvæði I | 10.200 | 9.990 | 8.300 | ||||||||||
* Leitað verði leiða til að fjármagna hringveg um Mýrdal og jarðgöng í Reynisfjalli í samstarfi við einkaaðila. | |||||||||||||
** Leitað verði leiða til að fjármagna hringveg norðaustan Selfoss og brú yfir Ölfusá í samstarfi við einkaaðila. | |||||||||||||
Suðursvæði II. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
|||||||||
Eftirstöðvar | Hönnunarstig | ||||||||||||
Vegnr. | Vegheiti | Lengd | kostnaðar 1.1.2020 | 1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | lokið | ||||||
Kaflanr. | Kaflaheiti | kafla [km] | [m.kr.] | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |||||||
Undirbúningur verka utan áætlunar | 750 | 250 | 250 | 250 | |||||||||
1 | Hringvegur | ||||||||||||
e1–e2 | Fossvellir – Norðlingavað | 8,6 | 4.000 | 110 | 3.890 | Skilgr./Frumdr. | X | X | |||||
f5 | Um Kjalarnes | 8 | 4.000 | 4.000 | Frumdrög | X | X | ||||||
36 | Þingvallavegur | ||||||||||||
12 | Í Mosfellsdal, tvö hringtorg og undirgöng | 450 | 450 | Skilgreining | X | X | |||||||
41 | Reykjanesbraut | ||||||||||||
12/13 | Fjarðarhraun – Mjódd | 60 | 30 | ||||||||||
15 | Tenging við Álhellu | 150 | 150 | Frumdrög | X | X | |||||||
15 | Krýsuvíkurvegur – Hvassahraun | 5,5 | 3.000 | 110 | 2.890 | Skilgr./Frumdr. | X | X | |||||
19–21 | Fitjar – Rósaselstorg | 4,5 | 3.000 | 3.000 | Frumdrög | X | X | ||||||
413 | Breiðholtsbraut | ||||||||||||
01 | Hringvegur – Jaðarsel | 60 | 30 | ||||||||||
417 | Bláfjallavegur og | ||||||||||||
407 | Bláfjallaleið | 12,7 | 50 | 50 | Frumdrög | X | X | X | |||||
450
|
Sundabraut* | ||||||||||||
Framlag ríkis til Samgöngusáttmála | 11.000 | 10.000 | 8.000 | X | X | X | X | ||||||
Samtals Suðursvæði II | 15.730 | 20.480 | 8.250 | ||||||||||
* Unnið að því að fjármagna Sundabraut í samstarfi við einkaaðila. | |||||||||||||
Vestursvæði. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
|||||||||
Eftirstöðvar | Hönnunarstig | ||||||||||||
Vegnr. | Vegheiti | Lengd | kostnaðar 1.1.2020 | 1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | lokið | ||||||
Kaflanr. | Kaflaheiti | kafla [km] | [m.kr.] | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |||||||
Undirbúningur verka utan áætlunar | 920 | 260 | 310 | 350 | |||||||||
1 | Hringvegur | ||||||||||||
f8 | Tvöföldun Hvalfjarðarganga* | ||||||||||||
g1–g5 | Akrafjallsvegur – Borgarnes | 30 | 8.000 | 3.400 | 4.600 | Skilgreining | X | X | |||||
g6–g7 | Um Borgarnes | 4,5 | 1.500 | 1.500 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | |||||
g6–g7 | Um Borgarnes, öryggisaðgerðir | 150 | 150 | Frumdrög | X | X | |||||||
h4 | Um Heiðarsporð (Biskupsbeygja) | 2,5 | 350 | 350 | Frumdrög | X | X | ||||||
52 | Uxahryggjavegur | ||||||||||||
04 | Brautartunga — Kaldadalsvegur | 23,0 | 1.850 | 1.850 | Skilgr./Frumdr. | X | X | ||||||
54 | Snæfellsnesvegur | ||||||||||||
10 | Um Fróðárheiði | 70 | 70 | Verkhönnun | X | X | |||||||
18–22 | Skógarströnd | 50 | (4.000) | 100 | 850 | 3.100 | Skilgreining | X | X | ||||
60 | Vestfjarðavegur | ||||||||||||
25–28 | Um Gufudalssveit | 25,8 | 7.200 | 7.200 | Forh./Verk | X | X | X | |||||
35–37 | Dynjandisheiði | 35,2 | 5.800 | 5.600 | 200 | Forhönnun | X | X | X | ||||
44 | Um Bjarnardalsá í Önundarfirði | 290 | 250 | ||||||||||
61 | Djúpvegur | ||||||||||||
35 | Um Hattardalsá | 2 | 350 | 350 | Frumdrög | X | X | ||||||
63 | Bíldudalsvegur | ||||||||||||
02 | Um Botnsá í Tálknafirði | 390 | 280 | ||||||||||
04–06 | Bíldudalsflugvöllur – Vestfjarðavegur | 30,0 | 4.800 | 4.800 | Forhönnun | X | X | X | |||||
68 | Innstrandavegur | ||||||||||||
10 | Heydalsá – Þorpar | 5,0 | 300 | 300 | Frumdrög | X | X | ||||||
509 | Akranesvegur | ||||||||||||
02 | Faxabraut, hækkun vegar og sjóvörn | 0,6 | 500 | 500 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | |||||
612 | Örlygshafnarvegur | ||||||||||||
03 | Um Hvallátur | 2,1 | 150 | 150 | Frumdrög | X | X | ||||||
643 | Strandavegur | ||||||||||||
06 | Um Veiðileysuháls | 12,0 | 750 | 300 | 450 | Frumdrög | X | X | X | ||||
Samtals Vestursvæði | 15.560 | 12.160 | 9.550 | ||||||||||
* Leitað verði leiða til að fjármagna tvöföldun Hvalfjarðarganga í samstarfi við einkaaðila. | |||||||||||||
Norðursvæði. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
|||||||||
Eftirstöðvar | Hönnunarstig | ||||||||||||
Vegnr. | Vegheiti | Lengd | kostnaðar 1.1.2020 | 1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | lokið | ||||||
Kaflanr. | Kaflaheiti | kafla [km] | [m.kr.] | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |||||||
Undirbúningur verka utan áætlunar | 920 | 260 | 310 | 350 | |||||||||
1 | Hringvegur | ||||||||||||
q6 | Um Skjálfandafljót | 800 | 40 | ||||||||||
r6 | Jökulsá á Fjöllum | 2 | 2.200 | 25 | 2.200 | Frumdrög | X | X | |||||
73 | Þverárfjallsvegur um Refasveit og | ||||||||||||
74 | Skagastrandarvegur um Laxá | 16,3 | 1.700 | 1.600 | Frumdrög | X | X | X | |||||
85 | Norðausturvegur | ||||||||||||
02–03 | Um Skjálfandafljót | 9,5 | 2.200 | 2.200 | Frumdrög | X | X | ||||||
06 | Um Köldukvíslargil | 255 | 65 | Frumdrög | X | X | X | ||||||
27 | Brekknaheiði | 7,6 | 1.100 | 1.100 | Frumdrög | X | X | X | |||||
711 | Vatnsnesvegur | ||||||||||||
Ýmsir staðir | 60 | 3.000 | 500 | 2.500 | Skilgreining | X | X | X | |||||
815 | Hörgárdalsvegur | ||||||||||||
01 | Skriða – Brakandi | 4 | 250 | 250 | Frumdrög | X | X | ||||||
829 | Eyjafjarðarbraut vestri | ||||||||||||
02 | Um Hrafnagil | 1,8 | 300 | 300 | Skilgr./Frumdr. | X | X | ||||||
842 | Bárðardalsvegur vestri | ||||||||||||
01–04 | Hringvegur – Sprengisandsleið | 37 | 1.600 | 900 | 700 | Skilgreining | X | X | |||||
862 | Dettifossvegur | ||||||||||||
02–03 | Súlnalækur – Ásheiði | 14,6 | 950 | 950 | Verkhönnun | X | X | X | |||||
Samtals Norðursvæði | 4.590 | 6.110 | 3.550 | ||||||||||
Austursvæði. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
|||||||||
Eftirstöðvar | Hönnunarstig | ||||||||||||
Vegnr. | Vegheiti | Lengd | kostnaðar 1.1.2020 | 1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | lokið | ||||||
Kaflanr. | Kaflaheiti | kafla [km] | [m.kr.] | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |||||||
Undirbúningur verka utan áætlunar | 920 | 260 | 310 | 350 | |||||||||
1 | Hringvegur | ||||||||||||
t3 | Lagarfljót | 4,5 | 2.000 | 220 | 2.000 | Skilgreining | X | X | |||||
u0–u7 | Reyðarfjörður – Breiðdalsvík | 41,0 | 4.800 | 4.800 | Frumdrög | X | X | ||||||
v4–v5 | Um Berufjarðarbotn | 4,7 | 100 | 100 | Frumdrög | X | X | ||||||
x1–x2 | Um Hvalnes- og Þvottárskriður | 0,2 | 150 | 150 | Frumdrög | X | X | ||||||
x3–x4 | Um Lón | 16,0 | 3.300 | 3.300 | Frumdrög | X | X | ||||||
x6–x9 | Um Hornafjarðarfljót* | 18 | 2.450 (50%) | 2.450 | Verkhönnun | X | X | X | |||||
y2 | Um Steinavötn | 350 | 350 | Verkhönnun | X | X | |||||||
y7–y9 | Kotá – Morsá | 12 | 1.600 | 1.600 | Skilgr./Frumdr. | X | X | ||||||
92 | Norðfjarðarvegur | ||||||||||||
04 | Um Grænafell, snjóflóðavarnir | 200 | 200 | Frumdrög | X | X | |||||||
94 | Borgarfjarðarvegur | ||||||||||||
03–04 | Eiðar – Laufás | 14,7 | 750 | 430 | 320 | Skilgr./Frumdr. | X | X | |||||
06–07 | Um Vatnsskarð | 8,8 | 200 | 220 | Verkhönnun | X | X | ||||||
95 | Skriðdals- og Breiðdalsvegur | ||||||||||||
02 | Um Gilsá á Völlum | 285 | 15 | ||||||||||
917 | Hlíðarvegur | ||||||||||||
01–06 | Ýmsir staðir | 20 | 1.200 | 1.200 | Skilgreining | X | X | ||||||
923 | Jökuldalsvegur | ||||||||||||
01 | Gilsá – Arnórsstaðir | 3,4 | 280 | 280 | Frumdrög | X | X | ||||||
931 | Upphéraðsvegur | ||||||||||||
02–09 | Ýmsir staðir | 4,5 | 270 | 270 | Skilgr./Frumdr. | X | X | ||||||
939 | Axarvegur | ||||||||||||
01–02 | Um Öxi* | 20 | 1.400 (50%) | 1.400 | Frumdrög | X | X | X | |||||
Samtals Austursvæði | 5.875 | 1.100 | 13.250 | ||||||||||
Samtals almenn verkefni | 51.955 | 49.840 | 42.900 | ||||||||||
* Leitað verði leiða til að fjármagna Axarveg og hringveg um Hornafjarðarfljót í samstarfi við einkaaðila (50%). | |||||||||||||
Jarðgangaáætlun. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
|||||||||
Eftirstöðvar | Hönnunarstig | ||||||||||||
Vegnr. | Vegheiti | Lengd | kostnaðar 1.1.2020 | 1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | lokið | ||||||
Kaflanr. | Kaflaheiti | kafla [km] | [m.kr.] | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |||||||
60 | Vestfjarðavegur | ||||||||||||
39 | Dýrafjarðargöng | 11,8 | 3.700 | 3.700 | Verkhönnun | X | X | X | |||||
93 | Seyðisfjarðarvegur | ||||||||||||
Fjarðarheiðargöng | 13,4 | 17.500 (50%) | 3.200 | 11.500 | 3.000 | Frumdrög | X | X | X | ||||
Mjóafjarðargöng/Seyðisfjarðargöng | 12,3 | 15.400 (50%) | 8.000 | Skilgreining | X | X | X | ||||||
Samtals jarðgangaáætlun | 6.900 | 11.500 | 11.000 | ||||||||||
Sameiginlegt. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
|||||||||
1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | |||||||||||
2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |||||||||||
Ýmsar framkvæmdir, undir 1.000 millj. kr. | 4.500 | ||||||||||||
Tengivegir, bundið slitlag | 6.209 | 7.112 | 7.448 | X | X | X | |||||||
Breikkun brúa | 2.500 | 2.600 | 4.700 | X | X | ||||||||
Hjóla- og göngustígar | 1.216 | 1.500 | 1.750 | X | |||||||||
Samgöngurannsóknir | 100 | 100 | 100 | ||||||||||
Héraðsvegir | 550 | 750 | 750 | ||||||||||
Landsvegir utan stofnvegakerfis | 800 | 850 | 900 | ||||||||||
Styrkvegir | 500 | 500 | 500 | X | |||||||||
Reiðvegir | 375 | 400 | 400 | ||||||||||
Smábrýr | 250 | 250 | 250 | X | X | ||||||||
Girðingar | 300 | 300 | 300 | X | |||||||||
Sameiginlegur jarðgangakostnaður | 50 | 50 | 50 | ||||||||||
Óráðstafað | 800 | ||||||||||||
Samtals sameiginlegt | 12.850 | 15.212 | 21.648 | ||||||||||
Samtals nýframkvæmdir | 71.705 | 76.552 | 75.548 | ||||||||||
Þar af ófjármagnað í fjármálaáætlun | 4.500 |
Tafla 6 – Framkvæmdaáætlun Samgöngusáttmála 2020–2034.
Framkvæmdir að hluta fjármagnaðar af samgönguáætlun. Bein framlög af samgönguáætlun til Samgöngusáttmála, sjá töflu 5.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
||||||||||
Eftirstöðvar | Hönnunarstig | ||||||||||||
Vegnr. | Vegheiti | Lengd | kostnaðar 1.1.2020 | 1. tímabil | 2. tímabil | 3. tímabil | lokið | ||||||
Kaflanr. | Kaflaheiti | kafla [km] | [m.kr.] | 2020–2024 | 2025–2029 | 2030–2034 | |||||||
1 | Hringvegur | ||||||||||||
e2 | Norðlingavað – Bæjarháls | 2 | 1.200 | 1.200 | Skilgr./Frumdr. | X | X | ||||||
e3 | Bæjarháls – Vesturlandsvegur | 1 | 1.090 | 1.090 | Forh./Verkh. | X | X | ||||||
f3 | Skarhólabraut – Hafravatnsvegur* | 1,8 | 750 | 350 | Forh./Verkh. | X | X | ||||||
40 | Hafnarfjarðarvegur | ||||||||||||
Stokkur í Garðabæ | 7.600 | 4.300 | 3.300 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | ||||||
41 | Reykjanesbraut | ||||||||||||
04–11 | Holtavegur – Stekkjarbakki | 2.200 | 2.200 | Skilgreining | X | X | X | ||||||
12 | Gatnamót við Bústaðaveg | 1.100 | 1.100 | Skilgr./Frumdr. | X | X | |||||||
12 | Undirgöng í Kópavogi – skuld* | ||||||||||||
13 | Álftanesvegur – Lækjargata | 13.100 | 500 | 12.600 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | |||||
14 | Kaldárselsvegur – Krýsuvíkurvegur* | 3,3 | 1.600 | 1.600 | Verkhönnun | X | X | ||||||
49 | Miklabraut | ||||||||||||
03–04 | Stokkur | 21.800 | 12.500 | 9.300 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | |||||
411 | Arnarnesvegur | ||||||||||||
Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut | 1,3 | 1.600 | 1.600 | Skilgr./Frumdr. | X | X | |||||||
Borgarlína | |||||||||||||
Ártún – Hlemmur* | 5,2 | 8.300 | 8.300 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | X | |||||
Hamraborg – Hlemmur* | 7,9 | 8.200 | 8.200 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | X | |||||
Mjódd – BSÍ | 4,5 | 8.400 | 1.600 | 6.800 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | X | ||||
Fjörður – Miklabraut | 7,9 | 9.400 | 7.800 | 1.600 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | X | ||||
Ártún – Spöng | 4,8 | 5.300 | 1.100 | 4.200 | Skilgreining | X | X | X | X | ||||
Hamraborg – Lindir | 2,8 | 3.600 | 3.600 | Skilgr./Frumdr. | X | X | X | X | |||||
Borgarlína um Keldur og Blikastaðaland | 8,4 | 5.800 | 5.800 | Skilgreining | X | X | X | X | |||||
Hjóla- og göngustígar | 6.000 | 3.360 | 1.680 | 960 | X | X | X | ||||||
Umferðarstýring, aukið umferðarflæði og öryggisaðgerðir* | 6.810 | 2.070 | 2.580 | 2.160 | X | X | X | ||||||
Göngubrýr og undirgöng* | 2.100 | 750 | 750 | 600 | X | X | X | ||||||
Samtals Samgöngusáttmáli | 48.820 | 48.110 | 18.620 | ||||||||||
* Verkefni að hluta eða öllu leyti fjármögnuð í samgönguáætlun 2019–2023 fyrir árið 2019. |