33. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 1. febrúar 2023 kl. 09:12


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:12
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:12
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:12
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:12
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:12
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:12
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:12
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:12
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:12

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:12
Dagskrárlið frestað.

2) Ákvörðun dómsmálaráðherra vegna beiðna Alþingis um afhendingu gagna og upplýsinga skv. 51. gr. þingskapa Kl. 09:12
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hauk Guðmundsson ráðuneytisstjóra, Berglindi Báru Sigurjónsdóttur skrifstofustjóra, Valgerði Maríu Sigurðardóttur og Magnús Ellert Bjarnason frá dómsmálaráðuneyti.

3) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka Kl. 10:48
Nefndin fjallaði um málið.

4) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:50