5. fundur
velferðarnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 16. október 2023 kl. 09:30
Opinn fundur


Mætt:

Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:30
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:30
Elva Dögg Sigurðardóttir (EDS), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:30
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 09:30
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:30

Líneik Anna Sævarsdóttir boðaði forföll.

Nefndarritari: Áslaug Einarsdóttir

Bókað:

1) Réttindi útlendinga sem sviptir hafa verið þjónustu í kjölfar lokasynjunar á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á fund Guðmund Inga Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Ráðherra fylgdu Ásthildur Linnet og Ásta Margrét Sigurðardóttir frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.

Því næst komu á fund nefndarinnar Heiða Björg Hilmisdóttir, Arnar Þór Sævarsson og Valgerður Rún Benediktsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kristín S. Hjálmtýsdóttir og Jón Brynjar Birgisson frá Rauða krossinum, og Sema Erla Serdarouglu frá Solaris-hjálparsamtökum.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00

Upptaka af fundinum