Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 14. febrúar 2014.

(1402015)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
13.02.2014 25. fundur utanríkismálanefndar Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 14. febrúar 2014.
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um fund sameiginlegu EES-nefndarinnar 14. febrúar 2014.

Á fund utanríkismálanefndar kom Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneyti.

Nefndin ákvað að taka til nánari athugunar, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um þingsköp Alþingis nr. 55/1991, efni eftirtalinna gerða:
- reglugerðar (ESB) nr. 1086/2011, er varðar salmonellu í nýju alifuglakjöti, sbr. fyrirhugaða ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2014,
- reglugerðar (EB) nr. 80/2009, er varðar tölvufarskráningarkerfi, sbr. fyrirhugaða ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2014,
- reglugerðar (ESB) nr. 209/2013, er varðar örverufræðileg viðmið fyrir spírur, sbr. fyrirhugaða ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 5/2014, og
- tilskipunar 2012/33/ESB, er varðar brennisteinsinnihald skipaeldsneytis, sbr. fyrirhugaða ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2014.

Með hliðsjón af fyrrgreindu ákvað nefndin að beina þeirri ósk til utanríkisráðherra að íslensk stjórnvöld beittu sér fyrir því að fyrirhuguðum fjórum ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 5/2014, nr. 7/2014, nr. 23/2014 og nr. 31/2014, er vörðuðu upptöku framangreindra ESB-gerða í EES-samninginn, yrðu teknar af dagskrá fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar 14. febrúar 2014 á meðan utanríkismálanefnd Alþingis fjallaði nánar um málið.
11.02.2014 23. fundur utanríkismálanefndar Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 14. febrúar 2014.
Á fund utanríkismálanefndar komu Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneyti, Gunnar Örn Indriðason frá innanríkisráðuneyti, Eggert Ólafsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Gerðu gestirnir grein fyrir málum á dagskrá fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar 14. febrúar 2014 og svöruðu spurningum nefndarmanna.