Eftirlit með hlutafélögum í eigu ríkisins 2016

(1603030)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
04.03.2016 45. fundur fjárlaganefndar Eftirlit með hlutafélögum í eigu ríkisins 2016
Frá Íslandspósti hf. komu kl. 9:00 til fundar við nefndina Ingimundur Sigurpálsson og Eiríkur H. Hauksson. Þeir lögðu fram ársskýrslu 2015 sem og kynningarefni um starfsemina. Þeir fóru yfir rekstur ársins og þau atriði sem hafa einkum haft áhrif á starfsemina og framtíðarhorfur fyrirtækisins. Þá svöruðu þeir spurningum nefndarmanna.
Frá Farice hf. komu Ómar Benediktsson og Martha Eiríksdóttir. Þau fóru yfir helstu atriði í ársreikningi félagsins, starfsemi liðins árs og horfur á næstu árum. Þá svöruðu þeir spurningum nefndarmanna.