Veiting ríkisborgararéttar

Önnur mál nefndarfundar (2204196)
Allsherjar- og menntamálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
15.06.2022 49. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Veiting ríkisborgararéttar
Tillaga um að nefndin flytji frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar var samþykkt.

Nefndin bókaði eftirfarandi:
Á tímabilinu 2. október 2021 til 1. maí 2022 bárust 71 umsókn um ríkisborgararétt sem beint er til Alþingis. Undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar hafa borist nauðsynleg gögn vegna hluta þeirra umsókna. Sá hluti lá til grundvallar umfjöllunar og frumvarpi nefndarinnar um veitingu ríkisborgararéttar. Umfjöllun og meðferð annarra umsókna frestast þar til nauðsynleg gögn hafa borist.

Nefndin ítrekar beiðni sína skv. 51. gr. þingskapa þess efnis að Útlendingastofnun afhendi allar umsagnir um umsóknir sem bárust á framangreindu tímabili, sbr. bókun á 31. fundi nefndarinnar. Nefndin harmar þær tafir sem orðið hafa á afhendingu gagnanna og væntir þess að Útlendingastofnun afhendi þau eigi síðar en 31. ágúst 2022.

Nefndin hefur fengið staðfest að frestun á umfjöllun um hluta umsókna mun ekki verða til þess að staða umsækjenda breytist á meðan umsókn um ríkisborgararétt er í vinnslu.

Allsherjar- og menntamálanefnd skipar í samræmi við þinglokasamninga undirnefnd sem er falið að endurskoða ferli varðandi umsóknir um veitingu ríkisborgararéttar með lögum og meðferð slíkra umsókna. Þá er undirnefndinni falið að leggja fyrir nefndina tillögur að framtíðarfyrirkomulagi og verklagi við veitingu ríkisborgararéttar með lögum eigi síðar en 15. október 2022. Undirnefndina leiðir formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Bryndís Haraldsdóttir. Auk hennar sitja í nefndinni Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Jódís Skúladóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Sigmar Guðmundsson.
14.06.2022 47. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Veiting ríkisborgararéttar
Samþykkt var að Jóhann Friðrik Friðriksson taki sæti Jódísar Skúladóttur í undirnefnd sem fjalli um umsóknir um ríkisborgararétt.

Nefndin fjallaði um málið.
17.05.2022 34. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Veiting ríkisborgararéttar
Nefndin fjallaði um málið.
28.04.2022 31. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Veiting ríkisborgararéttar
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir bar upp tillögu, á grundvelli 51. gr. þingskapa, um að fara fram á að Útlendingastofnun afhendi Alþingi allar umsóknir um ríkisborgararétt með lögum, sem bárust frá 2. október 2021 til og með 1. maí 2022, ásamt umsögnum þeim sem lög mæla fyrir um, eigi síðar en 16. maí nk. Var tillagan samþykkt.