55. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 3. maí 2023 kl. 09:10


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:10
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 09:10
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:10
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:10
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:10
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:10

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 54. fundar var samþykkt.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um fjárskuldbindingar ráðherra - samantekt Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur og Berglindi Eygló Jónsdóttur frá Ríkisendurskoðun.

Tillaga um að Þórunn Sveinbjarnardóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

3) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýsla og eftirlit Kl. 09:42
Nefndin fjallaði um málið.

4) Endurskoðun reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar Kl. 10:22
Nefndin fjallaði um málið.

5) Önnur mál Kl. 09:04
Fleira var ekki gert.

Hlé var gert á fundi frá kl. 09:35-09:40.

Fundi slitið kl. 10:30