Alþingiskosningar 1930 – landskjör
Landskjör fór fram í síðasta skipti 15. júní árið 1930 þegar kosið var um þrjú þingsæti en þessi aðferð til að velja fulltrúa til starfa á Alþingi var lögð af með stjórnarskrárbreytingu sem gerð var 1934.
Þrír stjórnmálaflokkar buðu fram við landskjörið: Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.
Um kosningarnar | |||
Kjördagur | 15. júní 1930 | ||
Mannfjöldi | 106.360 | ||
Kjósendur á kjörskrá | 34.467 | ||
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda | 32,4% | ||
Greidd atkvæði | 24.300 | ||
Kosningaþátttaka | 70,5% | ||
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda | 22,8% | ||
Kosningaþátttaka karla | 82,0% | ||
Kosningaþátttaka kvenna | 60,7% | ||
Kjörnir þingmenn | 3 | ||
Kosningaúrslit – landskjörnir þingmenn | |||
Gild atkvæði | 24.149 | ||
Sjálfstæðisflokkur | 48,3% | 2 þingmenn | |
Framsóknarflokkur | 31,4% | 1 þingmaður | |
Alþýðuflokkur | 20,3% |