Alþingiskosningar 1959 – fyrri kosningar ársins
Kjördæmaskipan hafði ekki breyst frá 1942 þegar meiri hluti Alþingis samþykkti frumvarp til stjórnarskipunarlaga 9. maí 1959 sem fól í sér gagngera breytingu á kjördæmaskipan og fjölgun þingmanna úr 52 í 60. Alþingi var rofið 28. júní og fóru alþingiskosningar fram þann dag, um það bil ári áður en reglulegar þingkosningar hefðu verið haldnar ef ekki hefði komið til þingrofsins.
Fimm stjórnmálaflokkar lögðu fram framboðslista við fyrri þingkosningar ársins 1959: Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Þjóðvarnarflokkur.
Alþýðubandalagið, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn buðu fram í öllum kjördæmum landsins, Alþýðuflokkurinn bauð ekki fram í Vestur-Skaftafellssýslu og Þjóðvarnarflokkurinn bauð aðeins fram í Reykjavík og Norður-Þingeyjarsýslu.
Um kosningarnar | ||
Kjördagur | 28. júní 1959 | |
Mannfjöldi | 170.156 | |
Kjósendur á kjörskrá | 95.050 | |
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda | 55,3% | |
Greidd atkvæði | 86.147 | |
Kosningaþátttaka | 90,6% | |
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda | 50,6% | |
Kosningaþátttaka karla | 93,1% | |
Kosningaþátttaka kvenna | 88,2% | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | 41 | |
Jöfnunarþingmenn | 11 | |
Heildarfjöldi þingmanna | 52 | |
Kosningaúrslit | ||
Gild atkvæði | 84.788 | |
Sjálfstæðisflokkur | 42,5% | 20 þingmenn |
Framsóknarflokkur | 27,2% | 19 þingmenn |
Alþýðubandalag | 15,3% | 7 þingmenn |
Alþýðuflokkur | 12,5% | 6 þingmenn |
Þjóðvarnarflokkur | 2,5% | |
Jöfnunarþingmenn | ||
Alþýðubandalag | 6 | |
Alþýðuflokkur | 5 |
Kjördæmi og þingmenn 28. júní 1959 | |
Einmenningskjördæmi | |
Borgarfjarðarsýsla | 1 |
Mýrasýsla | 1 |
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla | 1 |
Dalasýsla | 1 |
Barðastrandarsýsla | 1 |
Vestur-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Ísafjarðarkaupstaður | 1 |
Norður-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Strandasýsla | 1 |
Vestur-Húnavatnssýsla | 1 |
Austur-Húnavatnssýsla | 1 |
Siglufjarðarkaupstaður | 1 |
Akureyrarkaupstaður | 1 |
Suður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Norður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Seyðisfjarðarkaupstaður | 1 |
Austur-Skaftafellssýsla | 1 |
Vestur-Skaftafellssýsla | 1 |
Vestmannaeyjakaupstaður | 1 |
Hafnarfjarðarkaupstaður | 1 |
Gullbringu- og Kjósarsýsla | 1 |
Tvímenningskjördæmi – hlutfallskosning | |
Skagafjarðarsýsla | 2 |
Eyjafjarðarsýsla og Siglufjarðarkaupstaður | 2 |
Norður-Múlasýsla | 2 |
Suður-Múlasýsla og Neskaupstaður | 2 |
Rangárvallasýsla | 2 |
Árnessýsla | 2 |
Kjördæmi með hlutfallskosningu | |
Reykjavík | 8 |